XS - XL 2 - 11 ára | XS, S, M, L, XL |
---|
Ullarpeysa – Dökkblá og rauð
8.990 kr.
Ullarpeysa dökkblá fyrir leik- og barnaskóla
Fallegu lopapeysurnar eru sérhannaðar fyrir Hjallastefnuna og niðurgreiðir Hjallastefnan peysurnar á 8.900 kr. Voru áður 11.500 kr.
Litur: Dökkblá með dökkrauðu hálsmáli og stroffi á ermum
Stærðir:
XS 2-3 ára
S 4-5 ára
M 6-7 ára
L 8-9 ára
XL 10-11 ára
Fallegu Hjallastefnu-ullarpeysurnar eru hannaðar af Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og framleiddar í prjónaverksmiðju Glófa í Reykjavík. Í peysunum eru eiginleikar íslensku ullarinnardregnir fram. Ullin er ein sú hlýjasta í heiminum þar sem íslenska sauðkindin hefur þróað ullina út frá veðurfari á Íslandi frá landnámi. Varminn í peysunum er því einstakur og voðin lipur og létt. Til þess að gera peysurnar aðgengilegri fyrir sem flesta þá er mjúk ensk ull notuð í kraga og ermar peysunnar.
Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og var fyrsta skrefið ullarpeysa Hjallastefnunnar sem og að hætta þróun á vörulínum úr flísefni vegna umhverfissjónarmiða. Framtíðarstefna Hjallastefnunnar er einnig að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg.
Skyldar vörur
-
Hjallastefnubolur – Blár
4.190 kr. -
Vettlingar frá Cintamani – Bláir
1.000 kr. -
Vettlingar frá Cintamani – Rauðir
1.000 kr.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.