Hugleiðingar, rannsóknir og Hjallastefnupælingar
Hjallastefnan er lifandi íslensk hugmyndafræði í uppeldis- og menntamálum sem tekur stöðugum framförum í samtali við reynslu, rannsóknir og nýjar hugmyndir. Skólastarf er þess eðlis að við erum í sífellu að vanda okkur og leita leiða við gera gott enn betra.
Hér, á þessu heimasvæði langar okkur til þess að deila pistlum og hugleiðingum um Hjallastefnuna, skólastarf, börn og menntun. Við veltum fyrir okkur því sem við gerum, hvers vegna við gerum það og hvernig við getum gert enn betur.
Jafnframt segjum við frá rannsóknum sem tengjast Hjallastefnunni, þeim spurningum sem við leitum svara við og þeirri þekkingu sem verður til á leiðinni.
Við bjóðum öllum áhugasömum að lesa, ígrunda og taka þátt í samtalinu. Þannig vonumst við til þess að halda áfram að hafa góð áhrif, deila því sem við trúum á og stækka samtalið.
Hugarfarsrannsóknin
Við hvaða aðstæður gleymum við stund og stað, verðum svo niðursokkin í það sem við erum að fást við að tíminn hreinlega hverfur frá okkur?
Mörg okkar ættu að kannast við þá upplifun að takast á við verkefni, eða viðfangsefni sem fangar athygli okkar algerlega. Hugurinn er á einum stað og einbeitingin alger, algerlega órofin og við finnum hvernig við færumst áfram. Tíminn virðist líða hjá á ótrúlegum hraða, án þess að við tökum eftir flæði tímans. Klukkustundir hverfa á meðan við erum niðursokkin í verkefnið. Þessi upplifun hefur verið nefnd flæði og er veigamikla þýðingu fyrir nám, þroska og líðan.
Hugtakið flæði (flow) sem einkum hefur verið kennt við sálfræðinginn Mihaly Csikszentmihalyi er mikilvæg kenning sem tengja má námi og „mastery“ (að upplifa eigin færni). Okkar rannsóknir síðustu árin sýna fram á mikilvægi þess að einstaklingar upplifi flæði í sínu námi (Sigmundsson, 2024). Ef einstaklingur fær réttar áskoranir miðað við sína færni upplifir viðkomandi flæði. Ef áskoranir eru of stórar upplifir hann kvíða (anxiety). Ef hann fær of litlar áskoranir upplifir hann leiða (boredom). Skólastarf snýst um að finna jafnvægið þarna á milli.
Það er mjög mikilvægt að börn og unglingar upplifi flæði í skólastarfi. Flæði er afgerandi fyrir nám. Flæði gefur „mastery“ sem sýnt hefur verið fram á að gefur trú á eigin getu eða „self-efficacy“. Trú á eigin getu gefur síðan tilfinninguna „ÉG GET!“. Innan Hjallastefnunnar höfum við talað fyrir því að æfingin skapi meistarann, þessar rannsóknir sýna fram á að það viðhorf á sér sannarlega stoðir í samtímavísindum.
Það er sterk fylgni milli flæði og þrautseigju. Eins er einnig sterk fylgni milli flæði og trú á eigin getu. Þess á ofan sýna vísindin fram á neikvæða fylgni milli flæði og streitu, það er að segja að meira flæði dregur úr streitu.
Við viljum skapa aðstæður sem koma einstaklingum sem oftast í flæði. Það er mikilvægt fyrir árangur og vellíðan. Það að vera í flæði er að vera hér og nú. Þetta er mikilvægt fyrir allan aldur, fyrir börn og fullorðna.
Höfundar: Hermundur Sigmundsson og Bóas Hallgrímsson
Staða
Í íþróttum, tónlist og námi er þjálfun lykill að framförum. Börn æfa sendingar og skot í fótbolta, tónlistarfólk endurtekur sömu hendinguna og afreksíþróttafólk vinnur markvisst að því að bæta einstaka þætti í frammistöðu sinni. Í öllum tilvikum er markmiðið að þróa færni og ná betri tökum á viðfangsefninu.
Þegar börn eiga í erfiðleikum með tiltekna færni, svo sem í félagsfærni, hreyfifærni, orðaforða, lestri eða stærðfræði, getur ein mikilvæg skýring verið skortur á viðeigandi þjálfun og tækifærum til að æfa sig.
Í Hjallastefnunni hefur þjálfun verið grundvallarþáttur uppeldis- og skólastarfs frá upphafi. Einkunnarorðin „Æfingin skapar meistarann“ lýsa þeirri sannfæringu að færni barna þróist með reynslu, endurtekningu, hvatningu og markvissri leiðsögn. Þjálfunin nær jafnt til einstaklingsfærni og félagsfærni sem og þekkingar og leikni. Börn æfa sig í að standa með sjálfum sér, sýna áræðni, eiga samskipti, leysa ágreining, sýna vináttu og takast á við nýjar áskoranir.
Í verkefninu Kveikjum neistann, sem unnið hefur verið í Vestmannaeyjum frá árinu 2021 sjáum við að í rannsóknarhópi náðu 91–93% barna að lesa og skilja texta eftir 3. bekk (LÆS3). Þau börn sem stóðu frammi fyrir stærstu áskorununum í upphafi 1. bekkjar fengu markvissa þjálfun og eftirfylgni hjá sérkennara, fjórum sinnum í viku í 40 mínútur í senn, í þrjú skólaár.
Árangur kemur því ekki af sjálfu sér. Að geta lesið og skilið texta í 3. bekk er góður grunnur fyrir áframhaldandi þróun lestrarfærni. Til að öðlast góðan lesskilning þarf hins vegar að lesa margar bækur og fjölbreytta texta. Lestur er einnig mikilvæg forsenda skapandi skrifa og framsagnar og þessir þættir styðja hver annan.
Það má einnig nefna að þjálfun orðaforða er mikilvæg frá fæðingu. Að tala við börn, eiga við þau innihaldsrík samtöl og rækta samskipti í orðum, svipbrigðum og athöfnum alla barnæskuna og skólagönguna skiptir miklu máli.
Þetta rímar við áherslur Hjallastefnunnar á tungumálið, jákvæða orðræðu og samskipti. Í daglegu starfi gefast fjölmörg tækifæri til málörvunar, í hópatímum, leik, samveru og samtölum barna og kennara. Með markvissri málörvun og ríkulegum samskiptum má styðja við orðaforða, tjáningu, hugsun og félagsfærni barna.
Ef rætt er við framúrskarandi einstaklinga á sviði tónlistar, íþrótta eða vísinda kemur gjarnan í ljós að árangur þeirra byggist á mikilli og markvissri þjálfun yfir langan tíma. Góður árangur kemur ekki af sjálfu sér
Vísindi
Rannsóknir vísindamannsins K. Anders Ericsson (1947–2020) hafa sýnt fram á mikilvægi markvissrar þjálfunar (deliberate practice), endurgjafar og eftirfylgni við að öðlast færni og þekkingu.
Okkar eigin rannsóknir hafa sýnt fram á mikla sérhæfingu í námi. Við eflum þá færni sem við þjálfum og verðum betri. Með endurtekinni þjálfun styrkjum við þau tauganet sem tengjast þeirri færni og þekkingu sem við erum að tileinka okkur.
Í hugmyndafræði Hjallastefnunnar má finna skýran samhljóm við áhersluna á markvissa þjálfun. Kjörnun er ein grundvallaraðferð stefnunnar, þar sem viðfangsefni eru sundurgreind, markmið skýrð og leitað leiða til að útfæra hugmyndir í daglegu starfi. Í uppbótarvinnu birtist þessi hugsun meðal annars í því að greina hvaða færni barn þarf að styrkja og skapa því markviss tækifæri til æfinga og framfara.
Kynjanámskrá Hjallastefnunnar er gott dæmi um skipulagða þjálfun félags- og einstaklingsfærni. Þar er unnið markvisst með sjálfstæði, jákvæðni, áræðni, aga, samskipti og vináttu. Þessir þættir eru iðkaðir daglega og fá aukið vægi í sérstökum lotum yfir skólaárið. Með endurtekningu, leiðsögn og uppbyggilegri endurgjöf fá börn tækifæri til að efla færni sína og öðlast aukið öryggi.
Möguleikar
Það að við verðum góð í því sem við þjálfum þýðir að við þurfum að ákveða hvaða færni og þekkingu við viljum öðlast og þjálfa hana markvisst. „Use it and improve it“ og „Use it or lose it“ eru gagnleg leiðarljós fyrir fólk á öllum aldri og tengjast þekkingu okkar á námi og aðlögunarhæfni heilans.
Sama hugsun á við um uppeldi og kennslu. Hvernig þjálfum við barn í að sýna hugrekki? Hvernig lærir barn að hlusta, taka tillit til annarra, sýna þrautseigju eða leysa ágreining? Hvaða aðstæður sköpum við svo að hvert barn fái tækifæri til að æfa sig, gera mistök, reyna aftur og finna að því fer fram?
Upplifun barna af eigin framförum skiptir miklu máli. Þegar barn finnur að það nær smám saman tökum á viðfangsefni sem áður reyndist því erfitt getur það styrkt sjálfstraust þess, aukið trú þess á eigin getu og veitt því kjark til að takast á við nýjar áskoranir. Því er mikilvægt að hvert barn fái að upplifa árangur á eigin forsendum og njóta þeirrar gleði sem fylgir því að finna eigin færni vaxa.
Í Hjallastefnustarfi felast mikilvæg tækifæri í því að gera þessa þjálfun sýnilega og meðvitaða. Með skýrum markmiðum, skipulögðum starfsháttum og stöðugri ígrundun getum við betur tryggt að hvert barn fái þá hvatningu, leiðsögn og þjálfun sem það þarf til að vaxa og dafna.
Hvert barn á að fá tækifæri til að upplifa framfarir, finna eigin styrkleika og öðlast trú á getu sína. Þar skiptir markviss þjálfun, hvatning og leiðsögn sköpum. Æfingin skapar meistarann.
Höfundar: Hermundur Sigmundsson og Bóas Hallgrímsson
Orðan
Við Hjallastefnufólk vitum að öll börn þurfa ást og umhyggju til þess að dafna og þroskast sem best. Við vitum líka að börn þurfa nærandi umhverfi til þess að læra og verða móttækileg á nýja þekkingu. Við höfum kynjanámskrána (loturnar okkar) sem áttavita í þessu ferli og er hún frábært verkfæri þegar kemur að því að öll börn dafni sem best. Þegar kemur að orðaforða standa börn misjafnlega. Ríkur orðaforði og hæfni til þess að tjá sig eru nefnilega ekki meðfæddir þættir. Þessa færni þarf að næra og örva með því að bókstaflega baða börnin í tungumálinu. Börn þurfa jafnframt ólíka örvun eftir því sem kunnátta þeirra og þroski eykst.
Einstaklingsloturnar (Sjálfstæðislota, jákvæðnilota og áræðnilota) okkar skapa dýrmæt tækifæri fyrir hvert barn til að styrkja sjálfstraust og læra að tjá eigin hugsanir. Og í félagslotunum (Agalota, samskiptalota og vináttulota) okkar fá börn að æfa sig í að hlusta, eiga samskipti og nota tungumálið í samskiptum við .
Það er hlutverk okkar fullorðnu að greina hvenær barn þarf meiri örvun, hvenær það þarf aukna aðstoð og hvenær verkefni er orðið of krefjandi. Meginmarkmið okkar sem uppalenda er að finna verkefni sem að passa kunnáttustigi hvers barns. Sé það ekki gert getur barnið annaðhvort upplifað streitu eða misst áhugann á því sem það er að gera. En náist að halda samræmi milli getu barns og erfiðleikastigs verkefnis (þ.e.a.s. hæfilega krefjandi verkefni) næst flæði þar sem að barn nýtur þess að læra og drekkur inn mesta þekkingu. En til þess að finna viðeigandi verkefni fyrir hvern einstakling þurfum við að geta metið stöðu barnsins og hafa mælitæki sem styðja okkur í því. Enginn fæðist fullkominn uppalandi og stundum þurfum við einfaldlega smá aðstoð. Þess vegna erum við að þróa mælitæki fyrir starfsfólk á kjörnum Hjallastefnuleikskóla. Mælitækið köllum við Orðuna sem er hugsuð orðaforðamælitæki fyrir börn, og hjálpar okkur að sjá hvar hvert og eitt barn er statt. Í von um að finna hinn gullna meðalveg, það er að segja, áskoranir við hæfi og hjálpa hverju barni að finna sitt flæði.
Hjallastefnupistlar
visir.is þann 7. maí 2017
Lesa greinina hér
visir.is þann 27. janúar 2023
Lesa greinina hér
visir.is þann 6. september 2022
Lesa greinina hér
visir.is þann 27. janúar 2023
Lesa greinina hér