Skip to content

Vefverslun Hjallastefnunnar

Myndin sýnir tillögu að skipulagi á lífsgæðakjarnanum.

Hjallastefnan kynnir nýjungar í skólafatnaði og afhendingu í samstarfi við Bros

Í Hjallastefnuskólum klæðumst við skólafötum, jafnt börn sem starfsfólk. Undanfarin ár hefur Bros verið aðalbirgi Hjallastefnunnar en fatnaður afgreiddur frá Vefverslun í samstarfi við skólann beint í hólf barnsins.

Hjallastefnan kynnir nýjungar í afhendingu þar sem Bros afgreiðir fatnað beint til kaupanda í gegnum Dropp. Skil og skipti fara einnig fram með Dropp og frí heimsending ef pantað er fyrir lágmarksupphæð. Markmið er kjörnuð og skjót afgreiðsla til foreldra og forráðamanna og fjölbreyttara úrval af skólafatnaði.

Pantanir fara áfram fram með sama hætti í gegnum heimasíðu Hjallastefnunnar sem vísar á nýja pöntunarsíðu.

Fjölbreytt úrval af vönduðum skólafatnaði er áfram í boði þar sem gæði og vandaðir framleiðendur er í fyrirrúmi. Hjallastefnuleggings, sömu góðu gömlu og vinsælu verða áfram í boði og sambærilegar vörur og áður en aukið vöruframboð.

Allur leikskólafatnaður frá og með föstudeginum 6. febrúar færist í þetta nýja fyrirkomlag en barnaskólafatnaður er áfram pantaður í gegnum Vefverslun Hjallastefnunnar en mun færast með vori yfir til Bros og í afhendingu með Dropp.