Verkefni skólastjórnenda í skólum Hjallastefnunnar eru ærin og forgangsröðunin ávallt að mæta þörfum hvers barns, veita foreldrum framúrskarandi þjónustu og huga vel að starfsfólkshópnum.
Markmið Hjallastefnunnar í sínu stafræna umbreytingaferli hefur því verið að nýta tæknina til að létta stjórnendum lífið, tryggja öryggi gagna og bæta upplýsingagjöf til alls starfsfólks. Áhersla hefur verið á að nýta þau kerfi sem fyrir eru, minnka pappír og skýra og einfalda ferla með því að koma þeim á rafrænt form.
Með því að færa fleiri þætti starfseminnar inn í Microsoft umhverfið hefur náðst ákveðin kjörnun, fært allt á einn stað og bætt yfirsýn.
Hröð þróun í upplýsingatækni þessi misserin opna ný og ný tækifæri fyrir okkur til að byggja ofaná þann góða árangur sem við höfum náð nú þegar við að láta tæknina aðstoða okkur þannig að meira andrými gefist til að sinna barnastarfinu og stuðla að góð samstarfi innan og milli skóla.