Skip to content

Gleðidagur í leikskólanum Árbæ

Í gær, fimmtudaginn 8. ágúst, þegar leikskólinn Árbær opnaði eftir sumarleyfi ríkti mikil gleði og fögnuður en þá tók leikskólinn formlega til starfa sem Hjallastefnuskóli.  Í lok síðasta árs gerðu Hjallastefnan og sveitafélagið Árborg samkomulag sín á milli um rekstur leikskólans. Hjallastefnan réði til sín leikskólastjóra Maríu Ösp Ómarsdóttur sem af mikilli röggsemi hefur stýrt þeim breytingum sem nauðsynlegar eru þegar aðilaskipti verða á rekstri leikskóla og ný uppeldisstefna innleidd.

Skemmtileg breyting hefur verið gerð á lóð og umhverfi skólans en í starfi Hjallastefnunnar er lögð áhersla á opinn efnivið og náttúrulegt umhverfi barna. Hefðbundin leiktæki hafa verið fjarlægð og lóðin hefur breyst í skapandi heim fyrir börn og starfsfólk. Útikjarni hefur risið á lóð skólans í sumar og var hann formlega tekinn í notkun í dag þegar Margrét Pála Ólafsdóttir höfundur Hjallastefnunnar og Bragi Bjarnason bæjarstjóri klipptu á borðann og buðu börnin velkomin starfa í þessu glæsilega húsi. Bæði tóku þau til máls og lýstu ánægju sinni með samstarfið og hversu vel undirbúningur hefur gengið.

Bragi fagnaði fjölbreytni í skólastarfi og auknu vali foreldra í sveitarfélaginu Árborg.  Margrét Pála tók undir orð Braga og lýsti gleði yfir þessari samvinnu þar sem gildi Hjallastefnunnar og Árborgar eru í miklum samhljómi.

Alma Guðmundsdóttir og Bóas Hallgrímsson framkvæmdastjórar Hjallastefnunnar nefndu að allt frá upphafi hafi markmið með góðum leikskóla og sýn á velferð barna farið saman. Undirbúningur og vinnan öll hefur verið skemmtileg og samstarfið við Fjólu fyrrverandi bæjarstjóra, Heiðu Ösp Kristjánsdóttur sviðstjóra fjölskyldusviðs og alla aðra sem komið hafa að verkefninu verðið afar gefandi og uppbyggileg. Heiða Ösp tók undir orð framkvæmdarstjóra Hjallastefnunar  um að samstarfið hafi gengið vel og almenn ánægja væri með aukið val sem tilkoma Hjallastefnuskóla er í sveitarfélagið.

Í Árborg starfa sex leikskólar en Hjallastefnan kýs ávallt að vera val foreldra fyrir börn sín. Könnun sem gerð var meðal foreldra sýndi áhuga þeirra á að geta valið leikskóla í sveitafélaginu sem starfar eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Hjallastefnan býður leikskólann Árbæ hjartanlega velkominn í Hjallastefnufjölskylduna en hún samanstendur af 18 skólum sem starfa í 11 sveitafélögum.