Skip to content

Skólaföt í Hjallastefnunni

Skólaföt í Hjallastefnuskólum

Skólaföt Hjallastefnunnar

Í Hjallastefnuskólum klæðast börn og starfsfólk skólafötum. Þau eru einfaldur en mikilvægur hluti af skólasamfélaginu okkar, skapa samstöðu, styrkja tilfinninguna fyrir því að við séum öll í sama liði og gefa hverju barni rými til að njóta sín eins og það er. Skólafötin eru jafnframt vinnuföt barnanna og þurfa því fyrst og fremst að vera þægileg, vönduð og endingargóð sem henta leik, námi og hreyfingu alla daga. Undanfarið hafa orðið nokkrar breytingar á bæði rekstri vefverslunarinnar og hluta skólafatnaðar.

Okkur finnst mikilvægt að fara vel yfir hvað hefur breyst, hvers vegna breytingarnar voru gerðar og hvernig við fylgjum þeim eftir.

Hjallastefnan rak áður vefverslun með skólafatnað og sá um vikulega afgreiðslu pantana til skólanna. Eftir endurmat var ákveðið að færa lagerhald, pökkun, dreifingu, skil og skipti til sérhæfðs samstarfsaðila með það að markmiði að bjóða foreldrum skjótari og skilvirkari þjónustu. Bros hefur um árabil verið aðalbirgir skólafatnaðar Hjallastefnunnar og var því ákveðið að þróa samstarfið áfram. Í dag sér Bros um lagerhald og afgreiðslu pantana og fatnaður er sendur beint til kaupanda með Dropp og gjaldfrjálst ef pantað er fyrir lágmarksupphæð. Skil og skipti eru einföld í gegnum Dropp.

Hjallastefnan rekur því ekki lengur eigin lager og afgreiðslu en stýrir áfram vörulínunni í nánu samstarfi við Bros. Breytingar á vörum, útfærslum og framboði eru áfram unnar með aðkomu og samþykki Hjallastefnunnar.

Hvað hefur breyst í leikskólafatnaðinum?
Grunnfatnaður leikskólabarna er áfram stutt- og langermabolir, peysur, leggings og buxur, með rauðan og bláan lit Hjallastefnunnar í forgrunni.

Hinar klassísku Hjallastefnuleggings eru áfram þær sömu. Samhliða breytingunum hefur vöruúrvalið verið aukið, meðal annars með skólapeysum í rauðu og bláu.

Nýju stutt- og langermabolirnir eru frá öðrum framleiðanda en áður. Bolirnir eru frá frönskum framleiðanda og sniðin eru heldur minni en í eldri bolum. Stærðartafla er aðgengileg í vefversluninni og í mörgum skólum hefur verið pantaður prufufatnaður svo foreldrar geti skoðað stærðir áður en pantað er. Við hvetjum foreldra sérstaklega til að kynna sér stærðartöfluna og leita til síns skóla ef þeir eru óvissir um stærð.

Einnig er til skoðunar að bæta við langermabolum í enn minni stærðum fyrir yngstu börnin, 1–2 ára.

Hvað hefur breyst í barnaskólafatnaðinum?
Barnaskólarnir hafa ákveðið að fara blandaða leið þar sem sameiginlegum grunni er haldið en um leið skapað svigrúm fyrir sérstöðu hvers skóla.

Sameiginlegur grunnfatnaður allra barnaskóla Hjallastefnunnar, stutt- og langermabolir í rauðu og bláu, er nú pantaður með sama hætti og áður.

Einnig er von á klassískum svörtum joggingbuxum í vefverslunina. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og notkun buxna sem hluta af skólafatnaði fást hjá hverjum barnaskóla.

Skólapeysur eru hins vegar valdar í hverjum barnaskóla fyrir sig með þátttöku barnanna og pantaðar sérstaklega í gegnum skólann. Þannig fá börnin að hafa áhrif á útlit peysanna og hver skóli getur skapað sína eigin sérstöðu innan sameiginlegs ramma Hjallastefnunnar.

Gæði, ending og ábyrg framleiðsla
Skólaföt Hjallastefnunnar eru vinnuföt barna og þurfa að þola leik, hreyfingu, mikla notkun og reglulegan þvott. Gæði, þægindi og ending eru því mikilvægir þættir þegar vörur og framleiðendur eru valdir.

Við horfum jafnframt til efnisvals og framleiðsluhátta og leggjum áherslu á að framleiðendur geti sýnt fram á viðurkennda alþjóðlega staðla og vottanir á þeim fatnaði sem í boði er.  Hjallastefnan stýrir áfram þróun og samsetningu vörulínunnar í nánu samstarfi við Bros og fylgir reynslu barna og foreldra eftir við áframhaldandi þróun skólafatnaðarins.

Við fylgjum breytingunum eftir
Við vitum að skólafötin skipta fjölskyldur okkar máli og að breytingar á vörum sem fólk þekkir vel geta kallað fram spurningar og mikilvægar ábendingar. Við viljum hlusta á þær og nýta reynsluna til að gera betur.

Þess vegna verður reynslan af nýja fyrirkomulaginu og nýjum vörum metin sérstaklega. Hjallastefnan mun leggja fyrir könnun meðal foreldra fyrir árslok þar sem kallað verður eftir reynslu af meðal annars gæðum, endingu, stærðum, vöruúrvali, pöntunarferli og afhendingu. Niðurstöðurnar verða nýttar í áframhaldandi þróun.

Markmiðið með breytingunum er að foreldrar fái góða og skilvirka þjónustu og að börnin okkar hafi aðgang að vönduðum, þægilegum og endingargóðum skólafötum sem henta daglegu lífi þeirra í Hjallastefnuskólum.